Einstaklega einföld grænmetis-pasta baka
Uppskriftarflokkur
Heilbrigð pastabaka er hinn fullkomni sælumatur. Þessi girnilega baka tekur örskamma stund að undirbúa og er frábær máltíð fyrir alla fjölskylduna.
Mynd
Undirbúningstími
5mínútur
Eldunartími
20mínútur
Skammtafjöldi
4
Erfiðleikastig
Auðvelt
Innihald
400g heilhveiti pasta
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
1 pakki bulsur
400g niðurskornir tómatar
50g niðurskornir, sólþurrkaðir tómatar
1 "klípa" sykur
3 msk rautt pestó
50g cheddar ostur
Basil eða blandaðar jurtir
100g mozzarella ostur
Leiðbeiningar
- Sjóddu pastað í potti með nægu vatni þangað til það er fulleldað.
- Á meðan pastað sýður, skerðu niður laukin og steiktu hann á pönnu með hvítlauknum og smá olíu þangað hann verður mjúkur og laukurinn gegnsær.
- Bættu bulsunum við. Þegar þær eru brúnaðar, taktu þær upp úr og skerðu í góða bitastærð.
- Settu bulsurnar aftur saman við og bættu við tómötum, sykri, pestó og sólþurrkuðu tómötunum. Kryddið eftir smekk. Látið krauma þangað til megnið af vökvanum af tómötunum hefur gufað upp.
- Tæmdu vatnið af pastanu og bættu því við pönnuna með bulsunum og tómötunum. Bættu við helmingnum af cheddar ostinum og færðu svo yfir á grunnan disk eða form. Stráðu restinni af cheddar ostinum og mozzarella ostinum yfir diskana.
- Grillaðu í 10 mínútur eða þangað til osturinn er farinn að gulna. Borið fram með basillaufum.